PATREKUR :)

Patrekur Bergmann er 10 ára í dag.Wizard

Við héldum svaka veislu á laugardaginn og það kom til okkar fullt af skemmtilegu fólki til að fagna þessum áfanga með Patrek. Um kvöldið var svo grillað og horft á júróvisjón, mikið var um fögnuð í ár þar sem Ísland fékk ótal mörg stig....Grin 

Patrekur spilaði sinn fyrsta fótboltaleik með liði sínu í síðustu viku og auðvitað unnu strákarnir 11-8Wink Hann fer 2 í viku á æfingar á gríðarlega stóru æfingarsvæði hérna rétt hjá okkur.

Stærsta fréttin er sú að Patrekur er komin í danskan bekk....hann er búin að skipta um skóla, er semsagt hættur í móttökubekknum og er komin í "venjulegan" danskan bekk. Skólinn er hérna rétt hjá okkur og er hann ekki nema 3 mínútur að hjóla í skólann. Það gengur rosalega vel hjá honum og er alveg orðin flyvende í dansk sprog...

Læt fylgja með nokkrar myndir úr partýinu og af fótboltaleiknum.

Patrekur 10 ára 002

 

Patrekur 10 ára 014

Patrekur 10 ára 024

Patrekur 10 ára 017

Patrekur 10 ára 033

*júróstuð*

Patrekur 10 ára 031

Frábær dagur...

Kveðja frá sólríku köbenWink


"smá" blogg....

sussss...þetta er ekki nógu gott...það er bara ekkert búið að blogga í langan tíma. Það er allt í góðum gír hjá okkur og allir hressir og kátir. Svei mér þá ef að vorið er ekki bara komið hjá okkur, það er nú pínu kalt en sólin er farin að skína á okkur og danir farnir að létta á klæðum..(ekki ég samt, mér er auðvitað alltaf kalt).

Brynjar tók eitt próf um daginn, það var heimapróf og gekk vel. Patrekur rokkar bara í skólanum sínum, og þessa vikuna eru þemadagar og klárast þeir á laugardaginn...þá þurfa allir að mæta kl 8:45 og vera í skólanum til 12...mínum leist nú ekkert á blikuna að þurfa að mæta á laugardegi í skólann:(

Ég var í prófi í dönskuskólanum í morgun og náði...ekkert vesen bara blað og blíantur, við vorum 4 sem tókum prófið og yfirsetan fór nú bara yfir þetta svona jafnóðum, svo huggulegt. Ég klára út mánuðinn í þessum bekk og fer svo upp í næsta 1.apríl.

þangað til næst

hej hej

Gurrý.


Eitt og annað....

Sæl öll

Enginn annar en James Bond 007 birtist á föstudagsmorgun tilbúinn til að trylla skvísurnar á grímudansleik sem haldin var í skólanum hans Patreks. Þennan dag var ekkert litið í skólabækur bara leikið og kötturinn sleginn úr tunnunni.

James Bond 007

*hann er svo svalur*

við fengum okkur þennan fína hjólatúr á laugardaginn. Það vill svo skemmtilega til að þó'ann snjói hér kóngsins Köben þá dvelur hann ekki lengi á götum úti, það er alltaf hægt að hjóla...

Við byrjuðum viðkomu okkar í Kristjaníu, þangað hef ég aldrei komið fyrr..já og ekki Patrekur auðvitað heh...en þar var margt um skrítinn, skakkan, skítugan og skondinn manninn:) ýmis varningur var til sölu þar á bæ s.s klútar, skartgripir, minjagripir og hass sem eru svo sem ekkert nýjar fréttir. En auðvitað mátti ekki taka myndir þegar komið er inn fyrir línuna-----

Hjólað í Christianshavn

*Chr.havn*

Þarna er mjög gaman að skoða, bak við vegginn er allt annar heimur.

Kristjanía

*Myndataka bönnuð*

Við tókum svo ágætis rúnt um Chr.havn og enduðum í miðbæ KBH á litlu kósý kaffihúsi og nutum veitinga.....

Chr.havn

*Chr.havn*

Talandi um veitingar þá vorum við með bollukaffi á sunnudaginn. Harpa kom með börnin og áttum við yndislegan dag saman.

Bolla

*Bolla..Bolla*

Frábær helgi að baki, góðar stundir

Gurrý....sem hefur ekki ekið bíl í 6 mánuði...pældíði.

 

 

 

 

 


Vetur....

Sæl öll

Vetur konungur er í heimsókn hjá okkur þessa dagana, þegar við lögðum af stað í skólann í morgun var ca. 4 cm jafnfallinn snjór. En sem betur fer erum við enn með grófu fjalla dekkin undir hjólunum okkar:) en sleipan og slabbið er á götunum svo að það er betra að fara varlega í þannig færi.....en Danir salta alveg eins brjálaðir.

Febrúar 2009

Þessi mynd er tekin af svölunum okkar í dag ..brrrr..

Vetrafrí var í síðastliðinni viku og vorum við frekar róleg, það var reyndar ekkert frí hjá Brynjari en það var frí í dönskuskólanum hjá mér. Patrekur spilaði sinn fyrsta fótboltaleik með liði sínu KFB, það gekk mjög vel og var fín æfing  til að stilla saman strengi.

 

Það er óhætt að segja að það hafi verið íslenskt þema hjá okkur á laugardaginn, við hjóluðum á milli verslana til að kaupa eitt og annað góðgæti. 
*Skyr í skyrkökuna (Super Brugsen)
* Djúpur til að njóta ( Irma)
 *Nizza með lakkrís...græðgi (Irma)
mmmmmm.....íslenskt nammi er besta nammi í heimi...
Frekar svalt !!!!!!

 


Þorrablót...

Sæl öll

Um síðustu helgi héldum við *mini* Þorrablót á Lyneborggade, það var borðað vel og það er alltaf ljúft að fá ekta íslenskan mat...Við áttum ýmislegt góðgæti í frysti sem búið var að spara þar til kæmi að blóti. Brynjar reddaði hákarli og alles....ohh það var svo gott:)

Þorri

Patrekur tók vel til matarins og borðaði eins og hestur ...hann tók svo með sér hangikjöt í nesti og gaf Jan kennara sínum að smakka...

Patrekur að gúffa í sig..

Ég byrjaði í dönskuskólanum í síðustu viku og mér líst mjög vel á skólann, þarna eru krakkar allsstaðar að úr heiminum og er bara gaman að kynnast nýju fólki. Ég byrjaði í síðasta námskeiðinu sem eru 4 stig og ég er á stigi 2. Þetta er námsefni sem ég er búin að læra og gleyma....og það er bara gott og gaman að rifja þetta upp, og auðvitað læri ég fullt nýtt og tala auðvitað dönsku á meðan ég er í skólanum.

Í kvöld er svo sushi kvöld hjá Huldu og Edda....

Hulda ætlar að vera með kennslu fyrir okkur hin sem eru nýgræðingar í þessu fagi. Patrekur er mjög spenntur og hefur verið að æfa sig með prjónana....:)

Later

Gurrý, Brynjar og Patrekur.


Poppað...

Einfaldir og ósköp eðlilegir hlutir geta verið uppljómun fyrir börnin okkar, það getur verið gaman að útskýra fyrir þeim að þetta og hitt var ekki til  i "gamla" daga....

Örbylgjupopp hefur verið brúkað mikið á okkar heimili, en okkar ágæti örbylgjuofn kom ekki með til útlanda. Við höfum því leitað af popp-baunum í matvöruverslunum hér í kring en sú leit var ekki svo auðveld, þar til allt í einu...við fjárfestum í nokkrum pokum og drifið var í því að poppa...svona eins og var gert í gamladaga.

það sem þarf í það er...

-pottur og lok (mikilvægt)

-smjör

-poppbaunir

-ögn af salti stráð yfir, þegar baunir hafa poppast.

poppað

Hér er byrjað að krauma í poppinu....og spennan í hámarki

poppað

þetta er frábært.....þvílík upplifun.

Patrekur byrjaði svo í fótbolta í síðustu viku og æfir 1 sinni í viku, þar til í apríl þá verður aukið við æfingar. Fyrsta æfingin gekk vel, góðar æfingar og  Patrekur mjög ánægður að komast á fótboltaæfingu.

# Vító#

Flottur strákurinn:)

kveðja

Gurrý, Brynjar og Patrekur.

 


Sæl öll

 

Ég ákvað að taka mig saman í andlitinu og skella inn smá bloggi....

Tristan vinur hans Patreks kom til okkar í heimsókn 14. janúar þannig að það er búið að vera svaka stuð á þessum bæ..við erum búin að fara í dýragarðinn, sjá vaktaskiptin í Konungshöllinni,  sundferð var í gær, fara í bæinn og auðvitað er búið að kíkja í dótabúðir:) Tristan fer svo heim á morgun og tekur þá rútínan góða við.

 

Patrekur og Tristan á strikinu

 

Brynjar var að keppa í körfubolta í dag og leikurinn var þeim í hag...strákarnir eru að standa sig.

Later

Gurrý og strákarnir

 


Gleðileg jól

..og farsælt komandi ár.

Gurrý, Brynjar og Patrekur


Íslenskt já takk...

Við fengum þessa svakalega fínu sendingu í dag frá mömmu og pabba, það var endalaust gotterí í kassanum;) Lambalæri, hangikjöt, sviðasulta, lax, síld, kjötsúpa, súkkulaðirúsínur og ekki má gleyma suðusúkkulaðinu mmmmm...þetta var himneskt. Svona til að toppa allt þá skellti ég einum hangi bita í pott og það er ilmur af jólum svífandi um íbúðina.

Jólin nálgast og við höfum sent frá okkur jólagjafir og jólakort, á morgun er stefnt að því að fara og kaupa jólatré. Svo er bara að græja og gera allt klárt fyrir komu minna kæru tengdaforeldra, þau eru væntanleg á sunnudaginn. Vinafólk okkar í næsta stigagangi var svo almennilegt að lána þeim íbúðina sína á meðan á dvöl þeirra stendur, þar sem fóru til Íslands yfir hátíðarnar.

Á síðasta sunnudag fórum við á íslenskt jólaball í íslenska sendiráðinu með ekta íslenskum jólasveinum og íslenskum jólalögum. Þar var boðið uppá malt, appelsín, fullt af íslensku nammi og jólaglögg fyrir fullorðna.

Íslenskar afurðir

"Þessar veigar runnu ljúft niður"

Njótið aðventunnar kæru vinir

Kv.G.


pakkaveiki

Sæl öll

Jólaundirbúningur gengur hægt en gengur þó:) ég er búin að versla "næstum" allar jólagjafir, búin að setja upp jólaseríu, ég er ekki byrjuð á jólakortunum en aftur á móti er ég búin að baka og við erum einnig búin að vera dugleg að borða afurðirnar....bara að ég væri jafn dugleg að skrifa jólakortin og ég er búin að vera dugleg að baka...

Brynjar hefur verið við eldhúsborðið síðastliðna daga og rifjar upp fræðina sem tekin verður fyrir á prófi á fimmtudag...Hulda og Mikael litu við í dag og eru í spurningarleik um "fræðina".....

-sjáið hvað þau eru dugleg-

Hulda, Brynjar og Mikael

Við erum búin að fara og kíkja á nýju frænkuna og hún er alveg æðisleg..

ég og dúlla

Patrekur hefur dregið foreldra sína í dótabúðina til að skoða hvað mætti helst fara í jólapakkann, það er svooo mikið til af dóti að það er eins gott að vanda valið:)

-en hann er komin með pakkaveikina-

Star Wars er töff..en nýtt æði hefur heltekið hann, það eru DVD myndirnar með Bruce Lee og svo skemmtilega vildi til að Tommi átti safn af þessum myndum og hefur hann legið yfir þessu síðastliðna daga...hann væri alveg til í að læra Kung Fu!

Patrekur

...dúllan mín..

Jæja látum þetta duga í bili

stuðkveðjur frá Köb..

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband